Fyrsta skrefið í ökunáminu er að velja sér ökukennara. Þið farið saman yfir námið og það sem framundan er. Hér getur þú óskað eftir okkar bestu ökukennurum
Gott er að spyrja ökukennarann til dæmis:
- hvernig kennslunni sé háttað
- hvenær kennslan fari fram
- hvers konar kennsluáætlun sé fylgt
- hvaða bækur og námsgögn séu notuð
- hvaða ökuskólar séu í boði fyrir bóklega námið
- hvað kennslutíminn kosti og hvaða greiðslukjör séu í boði
Til að hefja ökunámið þarft þú að sækja um ökuskírteini (námsheimild).
Þegar rafræn umsókn um námsheimild hefur verið send inn, þarf umsækjandi að koma á skrifstofu sýslumanns með passamynd á ljósmyndapappír í stærðinni 35×45 mm, með einlitum bakgrunn ásamt því að gefa undirritun.
Ökunámsbók heldur utan um framvindu ökunáms. Í henni má nálgast upplýsingar um:
- ökuskóla sem nemi hefur lokið
- fjölda verklegra ökutíma sem nemi hefur lokið
- staðfestingu á æfingaakstri, sem er forsenda þess að foreldrar eða aðrir geti sótt um að vera leiðbeinendur í æfingaakstri
- niðurstöðu bóklegra og verklegra ökuprófa
Ökunemi í æfingaakstri sem stöðvaður er af lögreglu gæti þurft að sýna ökunámsbók til staðfestingar á leyfi til æfingaaksturs.
Bókin er á stafrænu formi og ökunemar geta nálgast hana á mínum síðum (undir Menntun og Ökunám).
Bókaðu ökutíma með ökukennaranum þínum og þú getur hafið verklega hluta námsins.
Þú velur ökuskóla og byrjar á námskeiðinu Ökuskóli 1.
Á námskeiðum er farið yfir grundvallaratriði varðandi
- skilning á umferðinni
- helstu umferðarreglur
- umferðarmerki
- umferðarsálfræði
- verkefni unnin og fleira
Einnig er aðstoðað við undirbúning ökuprófs.
Það þarf að lágmarki 10 ökutíma til þess að ökunemi sé tilbúinn í æfingaakstur. Ökukennari metur hvenær ökunemi er tilbúinn.
Til að þú megir keyra með öðrum en ökukennara þarf leiðbeinandi þinn að sækja um heimild til að gerast leiðbeinandi við æfingaakstur.
Æfingaleyfi er gefið út í allt að 18 mánuði.
Til að mega byrja æfingaakstur þarf ökukennarinn þinn að:
- ákveða hvenær æfingaaksturinn má byrja
- staðfesta í ökunámsbók að þú sért tilbúinn
Ökukennarinn fylgist með hvernig gengur í æfingaakstrinum og tekur viðbótar ökutíma á þjálfunartímanum eftir þörfum.
Eftir æfingaaksturinn tekur ökukennarinn aftur við og undirbýr þig fyrir ökuprófið.
Áður en farið er í Ökuskóla 3 þarf að ljúka:
- Ökuskóla 1
- að lágmarki 10 ökutímum
Betra er að taka fyrst ökuskóla 3 og svo ökuskóla 2. Þannig nýtist ökuskóli 2 betur til prófundirbúnings fyrir bóklegt próf
Ökugerði (verklegt nám)
Í ökugerði er líkt eftir hættulegum aðstæðum. Markmiðið er að neminn átti sig á hversu auðvelt og fyrirvaralaust er hægt að missa stjórn á bifreið, til dæmis í hálku eða lausamöl.
Fjallað er sérstaklega um:
- öryggis- og verndarbúnað bifreiða
- áhrif áfengis og annarra vímugjafa á aksturshæfni
- áhrif þreytu á aksturshæfni
Þú velur ökuskóla og tekur bóklegt nám sem heitir Ökuskóli 2.
Betra er að taka fyrst ökuskóla 3 og svo ökuskóla 2. Þannig nýtist ökuskóli 2 betur til prófundirbúnings fyrir bóklegt próf
Þegar ökunámi er lokið er hægt að panta tíma í bóklegt ökupróf.
Taka má bóklegt próf 2 mánuðum fyrir 17 ára afmælisdag. Lágmarksfjöldi verklegra ökutíma fyrir bóklegt próf er 12 ef Ökuskóla 3 er lokið, annars 14.
Frumherji hf. annast framkvæmd ökuprófa samkvæmt samningi við Samgöngustofu.
Á vef Frumherja er hægt að panta tíma í prófið.
Framkvæmd prófsins
Bóklega prófið er tekið á spjaldtölvur. Prófið samanstendur af 50 fullyrðingum sem svara á rétt eða rangt. Spurt er um efni sem þú hefur lært í ökuskólanum og hjá kennaranum.
Niðurstöður úr prófinu færðu strax við próflok. Svara þarf 45 fullyrðingum rétt til að standast prófið.
Ef þú fellur í prófinu getur þú tekið það aftur að viku liðinni. Sama gjald er greitt fyrir hvert próf sem tekið er.
Lespróf
Upplestur er í boði fyrir öll.
Túlkapróf
Ef viðkomandi talar ekkert af þeim tungumálum sem þýdd eru getur sá komið með túlk í prófið. Mikilvægt er að túlkur sé löggildur eða með samþykki frá Samgöngustofu.
Prófreglur
Miklvægt er að kynna sér prófreglur Samgöngustofu og Frumherja.
Oft eru teknir viðbótartímar áður en verklega prófið er tekið.
Gera má ráð fyrir 17-25 ökutímum í heildina en lágmarksfjöldi ökutíma er 15.
Verklegt próf má taka allt að 2 vikum fyrir 17 ára aldur. Ökukennari pantar verklega prófið eftir að þú hefur staðist bóklega prófið.
Framkvæmd prófsins
Munnlegt próf
Í munnlega prófinu sem tekið er í bílnum áður en farið er í aksturinn er spurt um ýmislegt sem snertir bílinn sjálfan eins og ljós í mælaborði, stjórn- og öryggistæki og hluti sem tengjast viðhaldi bílsins.
Verklegt próf
Í akstursprófinu er ekið um ákveðnar prófleiðir og prófdómari skráir niður plúsa og mínusa og reiknar síðan í lokin stig próftakans. Ef heildarstigatala fer undir 80 hefur próftaki ekki staðist prófið.
Ef þú fellur í prófinu getur þú tekið það aftur að viku liðinni. Sama gjald er greitt fyrir hvert próf sem tekið er.
Þegar ökunemi hefur staðist bæði bókleg og verkleg próf gefur sýslumaður út bráðabirgðaskírteini til þeirra sem hafa náð 17 ára aldri.
Bráðabirgðaskírteinið gildir í 1-3 ár. Að þeim tíma loknum má sækja um fullnaðarskírteini.
Nánar um skilyrði fyrir útgáfu ökuskírteina í reglugerð nr. 830/2011 um ökuskírteini.
Áður en fullnaðarskírteini er gefið út þarf að óska eftir akstursmati hjá ökukennara.
Ökumaður ræður sjálfur hvaða ökukennari annast aksturmatið fyrir hann og greiðir ökukennaranum fyrir matið samkvæmt gjaldskrá hans.
Hvað er akstursmat
Í akstursmati er kannað hvort mat ökumanns á eigin aksturshæfni, akstursháttum og öryggi í umferðinni sé í samræmi við raunverulega getu hans. Markmið akstursmats er að ökumaðurinn geri sér grein fyrir hæfni sinni og getu í umferðinni með tilliti til umferðaröryggis.
Hvernig fer akstursmat fram
- Mat á eigin á aksturshæfni og öryggi í umferð.
- Bíltúr með ökukennara. Ökukennari ákveður hluta akstursleiðarinnar og hluta ákveður ökumaðurinn.
- Ökumaður leggur mat á eigin akstur, hvað hefði betur mátt fara og hvað gekk vel.
- Ökukennari veitir endurgjöf.
Gert er ráð fyrir að akstursmat taki 50 mínútur, þar af aksturinn 30 mínútur og úrvinnsla og niðurstaða 15 mínútur þar sem ökumaðurinn og ökukennarinn ræða hvernig bæta megi öryggi ökumannsins.
Niðurstaða akstursmats
Að akstursmati loknu getur ökukennari staðfest framkvæmdina með rafrænum hætti. Ekki er hægt að falla í akstursmati. Þegar ökukennari hefur staðfest akstursmat getur ökumaður sótt um fullnaðarskírteini.
Sækja má um fullnaðarskírteini á Ísland.is þegar ökumaður hefur
- ekið á bráðabirgðaskírteini í eitt ár samfellt án þess að fá punkt vegna umferðarlagabrots
- farið í akstursmat
Bráðabirgðaskírteinið rennur út eftir þrjú ár frá útgáfudegi. Þá þarf ökumaður að sækja um fullnaðarskírteini eða fá nýtt bráðabirgðaskírteini gefið út.
Nánar um skilyrði og umsókn um fullnaðarskírteini.
Punktar vegna umferðarlagabrota
Hafi ökumaður fengið punkta vegna umferðarlagabrota þarf hann að vera áfram á bráðabirgðaskírteini í ár samfellt án frekari punkta.
Að þeim tíma liðnum getur ökumaður sótt um fullnaðarskírteini, fullnægi hann áður nefndum skilyrðum. Fullnægi hann þeim hins vegar ekki, fær hann útgefið bráðabirgðaskírteini á ný til þriggja ára.
Upplýsingar um punktastöðu er hægt að fá með því að mæta á næstu lögreglustjóraskrifstofu eða næstu lögreglustöð og framvísa persónuskilríkjum.
